PPH – flýtimeðferð einkaleyfisumsókna

„Patent Prosecution Highway“ (PPH) eða flýtimeðferð einkaleyfisumsókna er valkostur sem hefur undanfarin ár staðið íslenskum umsækjendum til boða. Yfirmarkmið PPH er að stytta afgreiðslutíma einkaleyfisumsókna á heimsvísu en mörg ríki eru með slíka samninga sín á milli.

Hugverkastofan hefur frá 6. janúar 2014 tekið þátt í samstarfi nokkurra ríkja um það sem nefnt hefur verið Global Patent Prosecution Highway (GPPH).  Um er að ræða bæði landsbundið PPH ferli og PCT-PPH. Hugverkastofan er einnig í PPH samstarfi við kínversku einkaleyfastofuna, CNIPA, sem framlengt hefur verið til 30. júní 2024. Það felur í sér bæði landsbundið PPH ferli milli ríkjanna og PCT-PPH ferli frá Kína til Íslands.

PPH felur í sér að hafi verið sótt um einkaleyfi í einu ríki (fyrri stofnun – Office of Earlier Examination/OEE), getur umsækjandi farið fram á flýtimeðferð í öðru ríki (seinni stofnun – Office of Later Examination/OLE) með vísan til viðkomandi samkomulags. Skilyrði fyrir slíkri beiðni er að sýnt sé fram á að fyrri stofnun hafi rannsakað sambærilega umsókn og metið a.m.k. einhverjar kröfur einkaleyfishæfar. Síðari stofnun er ekki skylt að taka fyrri rannsókn til greina heldur er reynt eftir fremsta megni að nýta þá rannsóknarvinnu sem þegar hefur farið fram.

Upplýsingar um hvernig sótt er um flýtimeðferð hjá Hugverkastofunni er að finna á ensku viðmóti síðunnar.